

Anthony Gordon gæti verið á leið til Bayern Munich í sumar ef marka má nýjustu fréttir frá Þýskalandi.
Samkvæmt heimildum hafa fulltrúar kantmannsins verið í sambandi við Bayern mánuðum saman vegna mögulegra félagaskipta frá Newcastle United.
Þá er sagt að þjálfari Bayern, Vincent Kompany, hafi þegar samþykkt hugsanleg kaup á enska landsliðsmanninum og telji hann henta vel inn í sitt lið.
Gordon hefur verið einn af lykilmönnum Newcastle undanfarin tímabil og því yrði brottför hans stórt högg fyrir félagið.
Enski kantmaðurinn er aðeins 25 ára gamall og talinn eiga sín bestu ár eftir, sem gerir hann að afar spennandi kosti fyrir þýsku meistarana.