

Jóhann Skúli Jónsson, gjarnan kallaður Jói Skúli, var gestur Helga Fannars í nýjasta þætti af Íþróttavikunni og með þeim var einnig Hörður Snævar Jónsson.
Hörður og Jóhann eru miklir stuðningsmenn Manchester United en sá fyrrnefndi hefur pirrað sig á Amad Diallo, leikmanni liðsins, á leiktíðinni.
„Ég hef farið á tvo leiki í vetur og hann er bara labbandi hálfan leikinn,“ sagði hann.
„Hann er með leiðinlegt attitjúd og Kobbie Mainoo átti nú bara að kyrkja hann þegar hann var að fara að eiga flottustu stoðsendingu tímabilsins en Amad að sjálfsögðu klúðraði því.“
Nánar í spilaranum.