fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
433Sport

Gísli Eyjólfs um Blika: „Þeir verða bara að eiga það við sig, ég mæti í Kópavoginn í öðrum leik og þar fá þeir að sjá mig“

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 8. apríl 2026 14:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gísli Eyjólfsson gekk í raðir ÍA í vetur og er hæstánægður á Skaganum. Hann er spenntur fyrir komandi sumri.

Skagamönnum er spáð 5. sæti af þjálfurum, fyrirliðum og formönnum liða í Bestu deildinni, en þetta var kynnt á kynningarfundi deildarinnar í dag, en tveir dagar eru í mót.

„Það er bara fínt að hafa umfjöllun en markmiðin okkar eru að stefna hærra,“ segir Gísli við 433.is, en Skagamenn hafa látið til sín taka á leikmannamarkaðnum í vetur, fengið til sín frábæra leikmenn og ætla sér stóra hluti.

„Mestu kröfurnar og væntingarnar eru hjá manni sjálfum. Maður vill gera vel í sumar og Skaginn er búinn að halda vel utan um sitt og gera vel á leikmannamarkaðnum.“

video
play-sharp-fill

Gísli er sáttur við fyrstu mánuðina á Akranesi.

„Þeir hafa verið æðislegir. Þetta hefur verið góður tími og við höfum nýtt tímann í að æfa vel og fara yfir réttu hlutina. Svo kemur að því að fara í fyrsta prófið og þá sér maður betur hvar við stöndum.“

Gísli kom heim frá Halmstad í Svíþjóð í vetur. Kom það strax í ljós að hann færi upp á Skaga?

„Fyrsta hugsun hjá mér var bara að koma mér frá samning. Þá ætlaði ég bara að kíkja á hvað væri í boði. En ég er mjög hamingjusamur með hvernig þetta endaði.“

Margir Blikar hafa lýst vonbrigðum með að fá Gísla ekki aftur til sín, en hann var einn allra besti leikmaður liðsins áður en hann fór út.

„Þeir verða bara að eiga það við sig, ég mæti í Kópavoginn í öðrum leik og þar fá þeir að sjá mig.“

Viðtalið í heild er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Efstur á blaði ef Mourinho fer til Real Madrid

Efstur á blaði ef Mourinho fer til Real Madrid
433Sport
Í gær

Nefna stóra breytingu í Vesturbænum milli ára

Nefna stóra breytingu í Vesturbænum milli ára
433Sport
Í gær

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar
433Sport
Í gær

Rogers fyrsti kostur United en eru með ódýrari kost á blaði

Rogers fyrsti kostur United en eru með ódýrari kost á blaði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vill þjálfa aftur á Englandi

Vill þjálfa aftur á Englandi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fyrirliðinn gagnrýnir Trump og FIFA rétt áður en hann mætir á HM

Fyrirliðinn gagnrýnir Trump og FIFA rétt áður en hann mætir á HM
433Sport
Fyrir 2 dögum

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum
Hide picture