fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fréttir

Einar Sveinbjörns um hvenær þessum leiðindaveðrum ljúki

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 7. apríl 2026 11:30

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hjá Bliku.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„HVENÆR LÝKUR ÞESSU?“ eru upphafsorð Einars Sveinbjörnssonar, veðurfræðings á Bliku, í færslu á samfélagsmiðlum í morgun. Tilefnið eru hin gegndarlausa lægðasúpa sem Ísland hefur legið í og er farið að þreyta landsmenn verulega.

„Eftir óvenjulega og hægláta tíð framan af vetri, ekki síst í janúar, urðu umskipti á stöðunni í háloftunum á aðeins nokkrum dögum seint í febrúar,“ segir Einar. „Fram að því hafði hún varla sést annars ríkjandi SV-átt að vetrinum á okkar slóðum, nema stund og stund. Eins voru áberandi hlýindi eða öllu heldur skortur á vetrarkulda við vesturströnd Grænlands og í norðaustur hluta Kanada. Talað var um að kuldapollurinn „Stóri-Boli“ væri týndur og tröllum gefinn. Í það minnsta ekki staðsettur á sínum heimaslóðum.“

Upp úr 20. febrúar urðu svo umskipti og þrálátt háþrýstisvæði norður af landinu gaf eftir. Þann 26. febrúar urðu straumhvörf þegar kalda loftið úr vestri ruddist með látum yfir Grænlandsjökul og til okkar. Þennan dag þurftu margar flugvélar að lenda neyðarlendingum á varaflugvöllum í Reykjavík, Akureyri og Egilsstöðum. Síðan þá hefur kuldinn í vestri fóðrað suðvesturáttina og sent hingað hverja óveðurslægðina á fætur annarri.

„Í upphafi var spurt að því hvenær þessu lyki?,“ segir Einar. „Svarið er: -ekki alveg strax og 10 daga spáin gefur til kynna áframhaldandi „leka“ af köldu loftiðúr norðvestri út yfir Atlantshafið. En andstæðurnar eru þó skv. spánni ekki nánda nærri eins skarpar. Spáð er lægðum hingað til lands áfram, en loftið sem þær bera með sér verður heldur mildara, en líkur þó á svalari dögum með N-átt á milli.“

En hins vegar mun vora á endanum.

„En auðvitað kemur að því með hækkandi sól að þessi lind af köldu heimskautalofti þverri þarna vestur yfir Kanada,“ segir hann.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn