fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fréttir

„Færð bara yfir þig dembuna“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 12. mars 2026 20:00

Hallgrímur Helgason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hallgrímur Helgason rithöfundur og myndlistarmaður segir svokallað woke-mál hafa orðið eitt helsta umræðuefni samfélagsins eftir orðaskipti hans og Sólveigar Önnu Jónsdóttur formanns Eflingar.

Í viðtali í hlaðvarpinu Karlmennskan segir Hallgrímur að hann hafi í raun ekki ætlað sér að fara inn í slíka umræðu. Segir hann hugtakið hafa verið mikið í umræðunni erlendis á þessum tíma.

„Ég var enginn sérfræðingur í woke. Ég hrasaði eiginlega bara inn í þessa umræðu. Sigmundur Davíð var nýbúinn að tala um þetta sem helvítis woke-kjaftæði og Donald Trump talaði stöðugt um woke.“

Hallgrímur segir að það hafi komið sér á óvart þegar Sólveig Anna lýsti andstöðu við hugtakið. „Mér brá því þegar ég heyrði Sólveigu Önnu vera á móti þessu vóki.“

Viðbrögð Hallgríms urðu til þess að umræðan fór fljótt á flug. „Ég sagði bara: Þú talar eins og Trump.“ Segir Hallgrímur umræðuna hafa farið langt út fyrir upphaflegt tilefni. „Svo varð þetta bara eitthvað stórt mál og allt í einu aðalumræðuefnið á kaffistofum landsins.“

Ný tegund af „haters“ komin á samfélagsmiðla

Hallgrímur segir að viðbrögðin á samfélagsmiðlum hafi verið hörð.

„Það er mjög hættulegt að tala um hana af því að þú færð bara yfir þig dembuna á Facebook.“

Hann segir að álagið hafi orðið það mikið að honum var ráðlagt að halda sig frá umræðunni á netinu. Hallgrímur segir jafnframt að umræðan á samfélagsmiðlum hafi breyst á síðustu árum.

„Það er komin svona ný tegund af haters inn á Facebook og þessa miðla.“

Hægt er að horfa og hlusta á allan þáttinn á karlmennskan.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Svíi sem grunaður er um að hafa tekið þátt í að kveikja í bíl lögreglukonu stefndi íslenska ríkinu

Svíi sem grunaður er um að hafa tekið þátt í að kveikja í bíl lögreglukonu stefndi íslenska ríkinu
Fréttir
Í gær

Eiríkur segir að íslensk tunga muni styrkjast við inngöngu í Evrópusambandið – Nefnir dæmi

Eiríkur segir að íslensk tunga muni styrkjast við inngöngu í Evrópusambandið – Nefnir dæmi
Fréttir
Í gær

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju
Fréttir
Í gær

Finnsku fiðlurokki spáð sigri í Eurovision

Finnsku fiðlurokki spáð sigri í Eurovision