fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Fréttir

Brynja Ýr er stúlkan sem var rænd á Tenerife – „Ég hélt hann ætlaði að kýla mig og drepa mig“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 11. mars 2026 09:00

Brynja Ýr Baugsdóttir er til hægri, í miðjunni er móðir hennar, Hulda Kristín Smáradóttir, og frænka þeirra Brá Guðmundsdóttir er til vinstri. Mynd: Aðsend.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

DV greindi frá því í gær að Anna Kristjánsdóttir hefði hitt unga íslenska stúlku á barnum Babylon á Tenerife. Stúlkan var hágrátandi og miður sín eftir að hafa verið rænd stuttu áður.

Sjá einnig: Ung íslensk stúlka rænd á Tenerife – „Hágrátandi og miður sín“

Stúlkan sem var rænd er Brynja Ýr Baugsdóttir, 36 ára, sem er stödd í Los Cristianos í fríi ásamt þremur frænkum sínum.

Í stuttu samtali við DV segir Brynja Ýr að móðir hennar og hennar maður hafi komið til Tenerife í gær og bæst við hópinn og hafi það löngu verið planað. Aðspurð segist hún hafa dvalið nokkrum sinnum áður á Tenerife og nú er bara að njóta þess sem eftir er af fríinu með fjölskyldunni.

Brynja Ýr sagði frá ráninu í myndbandi á TikTok, hún dvaldi ein á hóteli og þrjár frænkur hennar á öðru hóteli. Eftir strandarferð um daginn tók Brynja Ýr sig til á hótelinu og ætlaði svo að hitta frænkur sínar:

„Það er bjart úti og ég í peysu sem er reimuð að framan og er með hálsfesti. Ég er að labba upp tröppur og þar standa tveir svartir gaurar. Og ég hugsa svona inni í mér: Ekki vera með fordóma, þeir eru ekki að fara að ræna mig.“

Brynja Ýr segir mennina hafa farið í sitt hvora áttina þegar hún nálgaðist. Annar hafi gengið framhjá henni, stoppað og snúið sér við, gengið á móti henni og heilsað. Hún hafi heilsað á móti.

„Þá stekkur hann á mig, grípur í hálsfestina og rífur hana af mér. Ég er með sár þar sem hann reif hana af mér. Svo hleypur hann í burtu og ég horfi bara á eftir honum og er í sjokki. Ég var svo hrædd, hann var stærri en ég, ég hélt hann ætlaði að kýla mig og drepa mig. Þegar ég fór að átta mig fór ég að öskurgráta.“

Brynja Ýr hljóp að næsta bar, sem reyndist Babylón og hitti þar par sem hún sagði við á ensku að hún hefði verið rænd. „Og þá voru þetta Íslendingar sem búa hérna, þau sáu þetta en föttuðu ekki að ég var rænd.“

Peysa Brynju Ýrar var einnig rifin eftir atvikið. Segist hún búin að jafna sig. Fólk hafi hvatt hana til að hringja á lögregluna.

„Þetta er svo mikið sjokk, hann réðist bara á mig. Mér finnst það það versta, það er aldrei neinn að fara að finna þennan gaur. En vá hvað ég var heppin með þetta fólk, þau hjálpuðu mér mikið og voru voðalega næs.“

@brynja.baugs Trúi þessu ekki!! Að þetta hafi bara gerst 😢😢 farið varlega @byl_skartgripirbylovisa #tenerife #robbed #gellurstyðjagellur ♬ original sound – Brynja Baugs

Brynja Ýr hringdi síðan í frænkur sínar sem komu til hennar á Babylon.

Hún segist einnig hafa verið rænd í í fríi í fyrra við Barcelona, þá var símanum hennar stolið.

Hvött til að hringja í lögregluna

Í samtali við RÚV segist Brynja Ýr hafa verið hvött til að hringja á lögregluna, það var gert en lögreglan komst ekki vegna anna þar sem karnival var í gangi á Tenerife og næg verkefni hjá lögreglunni. Segir hún að henni hafi verið ráðlagt að fara á lögreglustöðina á Las Americas og tilkynna málið.

„Mögulega væri það gott og allt það til þess að hafa skráningar utan um þetta. En mér finnst þetta bara svo óþægilegt og mig langar ekki að gera meira mál úr þessu. Ég er ekki að fara að reyna að hafa upp á þessari festi með tryggingum eða neitt. Mig langar bara að mér líði vel og að ég jafni mig andlega frekar en eitthvað annað.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Erindi Heimis Más um stækkun hafnað

Erindi Heimis Más um stækkun hafnað
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Segist skorta þekkingu til að athuga frekar aðkomu Matvælastofnunar að málum sem varða slæma meðferð á dýrum

Segist skorta þekkingu til að athuga frekar aðkomu Matvælastofnunar að málum sem varða slæma meðferð á dýrum
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Moka inn peningum með því að veðja á stríðsátökin

Moka inn peningum með því að veðja á stríðsátökin
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Svala segist standa með Hafdísi og sé sjálf þolandi sama manns

Svala segist standa með Hafdísi og sé sjálf þolandi sama manns