fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fréttir

Níu Íslendingar hætt komnir í Brussel

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 11. mars 2026 07:49

Mynd úr skýrslu rannsóknarnefndar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Níu Íslendingar voru um borð í flugvél flugfélagsins SAS sem taka átti af stað frá Brussel til Kaupmannahafnar þann 5. febrúar síðastliðinn. Áhöfn vélarinnar áttaði sig ekki á því fyrr en á ögurstundu að vélin var ekki á flugbrautinni sjálfri þegar hún ætlaði að hefja sig á loft.

Fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag og sem fyrr segir kemur þar fram að níu Íslendingar hafi verið í hópi 152 farþega.

Fram kemur að þotan hafi verið á 235 kílómetra hraða og verið 1-2 sekúndum frá því að hefja sig á loft þegar aðstoðarflugmaðurinn kallaði: „Stopp, stopp stopp, stopp!“

Hafði flugmaðurinn áttað sig á því að ekki var allt með felldu þegar hann leit út um hliðargluggann í stjórnklefanum.

Tókst flugstjóranum að stöðva vélina stuttu síðar og urðu engin slys á fólki eða skemmdir á vélinni. Bent á að skilti sem hefði getað komið í veg fyrir þennan misskilning hafi verið bilað

Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að snarræði flugmanna hafi afstýrt flugslysi þetta kvöld.

Hægt er að kynna sér skýrslu vegna málsins á vef Flightradar.com.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fundarhöld um helgina
Fréttir
Í gær

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“
Fréttir
Í gær

Danska konan skuldar Gunnari um 11 milljónir – „Ég er alveg brjálaður yfir þessu“

Danska konan skuldar Gunnari um 11 milljónir – „Ég er alveg brjálaður yfir þessu“
Fréttir
Í gær

Ebba segist hafa bent á leiðir til að spara í rekstri LSH – „Kurteislega bent á að það væri líklega bara best að þegja“

Ebba segist hafa bent á leiðir til að spara í rekstri LSH – „Kurteislega bent á að það væri líklega bara best að þegja“
Fréttir
Í gær

Furðar sig á viðbrögðum frambjóðenda við ábendingu – „Sjálfstæðisflokkurinn eins og hann leggur sig er hlaupinn í felur“

Furðar sig á viðbrögðum frambjóðenda við ábendingu – „Sjálfstæðisflokkurinn eins og hann leggur sig er hlaupinn í felur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fjórir í gæsluvarðhaldi í umfangsmiklu fíkniefnamáli

Fjórir í gæsluvarðhaldi í umfangsmiklu fíkniefnamáli