fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
433Sport

Dramatík í Newcastle – Ótrúlegur leikur í Madríd

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 10. mars 2026 21:59

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Newcastle og Barcelona gerðu dramatískt jafntefli í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum í kvöld. Spilað var á Englandi.

Það var markalaust lengi vel en Harvey Barnes kom Newcastle yfir á 86. mínútu. Það var útlit fyrir að enska liðið færi með dýrmætt forskot til Katalóníu en í blálokin fengu Börsungar vítaspyrnu. Á punktinn fór Lamine Yamal og skoraði. Lokatölur 1-1 og allt jafnt fyrir seini leikinn.

Getty Images

Í Madríd komst Atletico Madrid í 4-0 í fyrri hálfleik gegn Tottenham. Í stöðunni 3-0 var Antonin Kynski, sem kom inn í mark Tottenham fyrir leikinn, tekinn af velli eftir tvö afdrifarík mistök sem leiddu til marka.

Pedro Porro og Dominic Solanke minnkuðu muninn þó tvisvar fyrir Tottenham í þessum ótrúlega leik, en Julian Alvarez skoraði fimmta mark Atletico þar á milli. Skoraði Argentínumaðurinn tvö mörk í kvöld. Lokatölur urðu 5-2 og Atletico í ansi vænni stöðu fyrir seinni leikinn í London.

Bayern Munchen vann ansi þægilegan 1-6 sigur á Atalanta og er hægt að fullyrða að liðið sé komið áfram. Michael Olise skoraði tvö mörk fyrir Bayern í kvöld og Josip Stanisic, Serge Gnabry, Nicolas Jackson og Jamal Musiala komust einnig á blað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Segir frá sorglegum degi í herbúðum United á dögunum

Segir frá sorglegum degi í herbúðum United á dögunum
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Neymar þreyttur þegar Ancelotti ætlaði að sjá hann – Setur HM þáttöku hans í uppnám

Neymar þreyttur þegar Ancelotti ætlaði að sjá hann – Setur HM þáttöku hans í uppnám
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Jökull kallar eftir breytingum fyrir sumarið – „Er einfaldlega of stór til að næg stemning myndist þar“

Jökull kallar eftir breytingum fyrir sumarið – „Er einfaldlega of stór til að næg stemning myndist þar“
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Útskýrir orð sín um Carrick eftir að hann var sakaður um árás í hans garð

Útskýrir orð sín um Carrick eftir að hann var sakaður um árás í hans garð
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Eddie Howe horfir í gamla félagið

Eddie Howe horfir í gamla félagið
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Arsenal sagt leiða kapphlaupið um þýska landsliðsmanninn – Fer frítt í sumar

Arsenal sagt leiða kapphlaupið um þýska landsliðsmanninn – Fer frítt í sumar