

Arsenal er sagt vera í fremstu röð í baráttunni um þýska miðjumanninn Leon Goretzka frá Bayern München.
Samningur hans er á enda í sumar og fer hann frítt frá Bayern.
Samkvæmt þýska blaðamanninum Christian Falk hefur Arsenal sýnt leikmanninum mikinn áhuga og gæti reynt að fá hann til liðs við sig í sumar. Goretzka er 31 árs gamall og hefur verið einn af lykilmönnum Bayern á miðjunni undanfarin ár.
Miðjumaðurinn er þekktur fyrir kraftmikinn leik, góða tækni og hæfileikann til að skora mörk úr annarri línu. Hann hefur einnig verið fastamaður í þýska landsliðinu.
Arsenal er talið vilja styrkja miðjuna fyrir næsta tímabil og Goretzka gæti bætt bæði reynslu og gæðum í hóp Mikel Arteta.