fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
433Sport

Elon Musk fær á baukinn – Ógeðsleg ummæli um Diogo Jota meðal annars látin falla

433
Mánudaginn 9. mars 2026 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Notendur á samfélagsmiðlinum X, í eigu Elon Musk, hafa fundið leið til að láta gervigreindarforritið Grok búa til móðgandi skilaboð sem beinast að stuðningsmönnum Liverpool og látnum leikmanni félagsins, Diogo Jota.

Í nokkrum dæmum hafa notendur beðið gervigreindina um að skrifa svæsnar færslur um félagið og stuðningsmenn þess. Í einu tilviki var Grok beðið um að gera grín að Liverpool og vísa sérstaklega til Hillsborough- og Heysel-hamfaranna. Svar forritsins innihélt gróft orðbragð um stuðningsmenn félagsins og niðrandi ummæli um borgina Liverpool.

Hillsborough-slysið átti sér stað árið 1989 þegar 97 stuðningsmenn Liverpool létust í troðningi. Fjórum árum fyrr létust 39 manns í Heysel-hörmungunum.

Í öðru dæmi var Grok beðið um að skrifa eitthvað niðrandi um Diogo Jota, leikmann Liverpool sem lést í bílslysi síðasta sumar ásamt bróður sínum, Andre Silva. Grok lét einfaldlega af því verða. Svarið var afar móðgandi og vakti mikla reiði meðal notenda.

Færslurnar hafa vakið harða gagnrýni og hafa margir krafist þess að þær verði fjarlægðar. Beina margir spjótum sínum að Musk sjálfum. Samkvæmt fréttum er knattspyrnufélagið Liverpool meðvitað um málið og hefur reynt að fá umræddar færslur fjarlægðar af miðlinum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Efstur á blaði ef Mourinho fer til Real Madrid

Efstur á blaði ef Mourinho fer til Real Madrid
433Sport
Í gær

Nefna stóra breytingu í Vesturbænum milli ára

Nefna stóra breytingu í Vesturbænum milli ára
433Sport
Í gær

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar
433Sport
Í gær

Rogers fyrsti kostur United en eru með ódýrari kost á blaði

Rogers fyrsti kostur United en eru með ódýrari kost á blaði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vill þjálfa aftur á Englandi

Vill þjálfa aftur á Englandi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fyrirliðinn gagnrýnir Trump og FIFA rétt áður en hann mætir á HM

Fyrirliðinn gagnrýnir Trump og FIFA rétt áður en hann mætir á HM
433Sport
Fyrir 2 dögum

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum