fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
433Sport

Kokkur höfðar mál – Segist hafa þurft að vinna oft 16 tíma á dag og aldrei fengið yfirvinnu

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 7. mars 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi einkakokkur Neymar hefur höfðað mál gegn brasilíska knattspyrnustjörnunni og sakar hann um að hafa látið hana vinna óhóflega langa vinnudaga á heimili hans.

Konan, sem hefur ekki verið nafngreind opinberlega, segir að hún hafi þurft að vinna allt að 16 tíma vaktir á lúxussetri Neymar í Mangaratiba í Rio de Janeiro. Hún segist hafa þróað með sér bakvandamál og bólgur í mjöðmum eftir marga mánuði af erfiðum vinnudögum.

Samkvæmt málsókninni átti ráðningarsamningur hennar að kveða á um um tíu tíma vinnudag. Vinnutíminn átti að vera frá klukkan 7 til 17 frá mánudegi til fimmtudags og frá 7 til 16 á föstudögum.

Hún heldur því hins vegar fram að þessi vinnutími hafi sjaldan verið virtur og að hún hafi oft þurft að vinna meira en 14 tíma á dag. Stundum hafi hún jafnvel þurft að vinna fram á miðnætti til að undirbúa máltíðir fyrir allt að 150 gesti sem komu í heimsókn til Neymar og vina hans.

Málið var lagt fram fyrir vinnurétti í Brasilíu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Sagður spenntari fyrir Liverpool en United – Meistaradeildin gæti þó haft áhrif

Sagður spenntari fyrir Liverpool en United – Meistaradeildin gæti þó haft áhrif
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Tók VAR-skjáinn úr sambandi og setti allt í uppnám

Tók VAR-skjáinn úr sambandi og setti allt í uppnám
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Sjáðu sturlaða uppákomu í Brasilíu – 23 fengu rautt spjald eftir hópslagsmál

Sjáðu sturlaða uppákomu í Brasilíu – 23 fengu rautt spjald eftir hópslagsmál
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Mourinho rekinn upp í stúku – Var stanslaust kallaður svikari

Mourinho rekinn upp í stúku – Var stanslaust kallaður svikari
433Sport
Í gær

Gæsahúðaraugnablik Íslendingsins – „Hann er mjög vel liðinn“

Gæsahúðaraugnablik Íslendingsins – „Hann er mjög vel liðinn“
433Sport
Í gær

Ekki til í að hoppa til Bandaríkjanna á þessum tímapunkti

Ekki til í að hoppa til Bandaríkjanna á þessum tímapunkti
433Sport
Í gær

Trent fær á baukinn eftir mistök sín um helgina

Trent fær á baukinn eftir mistök sín um helgina
433Sport
Í gær

Setur glæsilega eign á sölu – Kostaði meira árið 2011

Setur glæsilega eign á sölu – Kostaði meira árið 2011