

Íslenskir fjárhundar eru sífellt að verða vinsælli tegund hjá hundaeigendum í Bandaríkjunum. Líf þeirra er hins vegar ekki alltaf dans á rósum eins og mál sem er komið upp í Michigan fylki sýnir.
Hópur hunda hefur verið haldið í gíslingu hjá sýslumanni í um eitt og hálft ár eftir grun um alvarlegt dýraníð.
„Þeir eru fórnarlömb. Fórnarlömb aðstæðnanna sem þeir búa í og fórnarlömb þeirra sem halda þeim þarna,“ segir Patty Etzkorn, ræktandi íslenskra fjárhunda í Lake County í norðurhluta Michigan, við fréttastofuna 9 and 10 News. „Það þarf að sleppa þeim út. Við viljum fá þessi dýr sem er verið að fara illa með og koma þeim á ástrík heimili.“
Etzkorn seldi konu að nafni Michelle Dallaire hundana en Dallaire hefur síðan verið ákærð fyrir dýraníð. Etzkorn vill nú fá hundana aftur en þeim er haldið sem sönnunargögnum í málinu þangað til því er lokið. Dallaire er ákærð fyrir ofbeldi og vanrækslu í garð 10 hunda og 6 katta.

Kom þetta mál allt saman Etzkorn mjög í opna skjöldu. Enda sé Dallaire bæði hundaræktandi sjálf og lögfræðingur sem hafi sérhæft sig í dýravelferðarmálum.
„Þú ræktar hvolpa og gerir þitt besta til þess að finna gott heimili handa þeim og kemst síðan að því að svona lagað hafi gerst. Að þetta sé aðbúnaðurinn sem þeim er boðið upp á,“ segir Etzkorn. „Þetta veldur mér miklu hjartasári.“
Var það starfsmaður á býli Dallaire, Lisa Roelofs að nafni, sem tilkynnti málið til lögreglu eftir að hafa misboðið meðferðin á dýrunum. Meðal annars höfðu dýr drepist úr hreinni vosbúð hjá henni. Kom lögregla og tók hundana og kettina af Dallaire.

„Ég vill ekki að hún fái dýrin aftur. Ég hafði samband við alla ræktendur sem ég gat fundið,“ segir Roelofs. Dýraníðið hafi verið gagnvart fleiri dýrum en aðeins hundunum og köttunum. „Þegar ég mætti á svæðið voru stundum dauðar geitur eða fuglar þar. Hún sagði að þetta eða hitt hefði komið fyrir þau, hún skáldaði eitthvað og reyndi að telja mér trú um að ég væri ekki að sjá það sem ég sá. Svo fór hún að geyma hundana inni og leyfði mér ekki að sjá þá.“
Etzkorn er nú að reyna að fá hundana leysta til sín. Hjá sýslumanni fái þeir ekki að fara út og eru geymdir í búrum. Etzkorn segir að íslensku hvuttarnir séu í rauninni í fangelsi.
Það eru ekki aðeins Etzkorn og Roelofs sem hafa áhyggjur af dýrunum. Fjölmargir hafa hringt í saksóknarann í Lake County og lýst áhyggjum sínum. Saksóknarinn, Thomas Evans, segir hins vegar að lögin séu skýr og að hann geti ekkert gert.
„Hvort sem það eru lifandi dýr eða pappírssnifsi þá verður hið opinbera að varðveita sönnunargögn,“ segir Evans.