fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
433Sport

Terry segist hata þetta enska lið út af lífinu og útskýrir hvers vegna

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 6. mars 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

John Terry, goðsögn hjá Chelsea og fyrrverandi fyrirliði enska landsliðsins, segir að hann hati Tottenham. Það megi rekja til atviks þegar hann var aðeins 14 ára gamall.

Terry, sem vann fimm sinnum ensku úrvalsdeildina með Chelsea og lyfti einnig bæði Meistaradeildar- og Evrópudeildarbikarnum sem fyrirliði liðsins, sagði frá þessu í hlaðvarpi hjá Petr Cech, fyrrum liðsfélaga sínum.

„Ég hata Spurs, það er alveg á hreinu. Þegar ég kom fyrst til Chelsea var ég boltastrákur, 14 eða 15 ára, og stóð nálægt stuðningsmönnum Spurs. Þeir voru að öskra á mig og kasta hlutum í mig, ég var bara krakki,“ rifjaði Terry upp.

Hann bætti við að þetta hefði setið í sér alla tíð. Terry átti einnig frábæru gengi að fagna gegn Tottenham á ferlinum. Hann mætti liðinu 32 sinnum og vann 17 leiki.

„Ég er líka stoltur af því að á okkar tíma töpuðum við aldrei heimaleik gegn Spurs. Þeir hata mig eins mikið og ég hata þá, og það er bara í lagi,“ sagði Terry.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Sagður spenntari fyrir Liverpool en United – Meistaradeildin gæti þó haft áhrif

Sagður spenntari fyrir Liverpool en United – Meistaradeildin gæti þó haft áhrif
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Tók VAR-skjáinn úr sambandi og setti allt í uppnám

Tók VAR-skjáinn úr sambandi og setti allt í uppnám
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Sjáðu sturlaða uppákomu í Brasilíu – 23 fengu rautt spjald eftir hópslagsmál

Sjáðu sturlaða uppákomu í Brasilíu – 23 fengu rautt spjald eftir hópslagsmál
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Mourinho rekinn upp í stúku – Var stanslaust kallaður svikari

Mourinho rekinn upp í stúku – Var stanslaust kallaður svikari
433Sport
Í gær

Gæsahúðaraugnablik Íslendingsins – „Hann er mjög vel liðinn“

Gæsahúðaraugnablik Íslendingsins – „Hann er mjög vel liðinn“
433Sport
Í gær

Ekki til í að hoppa til Bandaríkjanna á þessum tímapunkti

Ekki til í að hoppa til Bandaríkjanna á þessum tímapunkti
433Sport
Í gær

Trent fær á baukinn eftir mistök sín um helgina

Trent fær á baukinn eftir mistök sín um helgina
433Sport
Í gær

Setur glæsilega eign á sölu – Kostaði meira árið 2011

Setur glæsilega eign á sölu – Kostaði meira árið 2011