fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Víkingar sagðir fá Jóhannes Kristinn á gjafaprís – Tíu milljónum ódýrari en Ívar Örn

433
Föstudaginn 27. febrúar 2026 13:00

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Víkingur Borgar 4,3 milljónir króna fyrir Jóhannes Kristinn Bjarnason sem kemur til félagisns frá Kolding í Danmörku. Þessu er haldið fram í Þungavigtinni.

Jóhannes hefur verið orðaður við Víking að undanförnu og tengdust þær sögur meðal annars mögulegri sölu á Valdimar Þór Ingimundarsyni. Sá verður þó áfram verið hjá félaginu eftir að hafa hafnað tilboði frá sænska liðinu Kalmar fyrr í mánuðinum.

„30 þúsund evrur, 10 milljónum minna en Ívar Örn Árnason til Breiðabliks,“ sagði Kristján Óli Sigurðsson í Þungavigtinni í dag.

Breiðablik keypti Ívar á 14 milljónir króna frá KA á dögnum.

„Hann er 21 árs á þessu ári, ég held að Kári Árnason horfi á hann sem svindlkarl í þessari deild. Hann afþakkaði alvöru laun hjá FH.“

Ef rétt reynist að Jóhannes hafi hafnað FH var hann þar að afþakka það að vinna með frænda sínum og nafna, Jóhannesi Karli Guðjónssyni sem tók við FH í vetur.

Hinn 21 árs gamli Jóhannes er uppalinn hjá KR en fór ungur til Norrköping í Svíþjóð áður en hann sneri aftur í Vesturbæinn. Hann átti gott tímabil með KR áður en hann var seldur til Kolding síðasta sumar.

Hjá danska liðinu fékk hann takmarkað tækifæri og virðist því nú á leið heim í íslenska boltann. Jóhannes er leikmaður U21 landsliðsins og getur leyst bæði bakvarðar- og miðjumannsstöður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“