
Staða Jurgen Klopp hjá Red Bull er sögð í óvissu og gæti það opnað dyrnar fyrir hann aftur í þjálfun.
Klopp hætti sem knattspyrnustjóri Liverpool eftir tímabilið 2023-2024 og tók við sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Red Bull 1. janúar í fyrra. Verkefnið nær yfir öll félög samsteypunnar.
Samkvæmt austurríska miðlinum Salzburger Nachrichten eru hvorki Klopp né forráðamenn Red Bull sáttir við stöðuna, en nokkur lið innan Red Bull hafa átt erfitt uppdráttar. Talið er að ef Þjóðverjinn vilji snúa aftur í þjálfun muni Red Bull ekki standa í vegi fyrir honum.
Ef af verður hefur Red Bull augastað á Oliver Glasner, núverandi stjóra Crystal Palace, sem mögulegum arftaka.
Þrátt fyrir vangaveltur um endurkomu til Liverpool hefur Klopp hingað til dregið úr slíkum sögusögnum. Einnig hefur verið nefnt að hann gæti tekið við þýska landsliðinu síðar meir.