

Franski landsliðsmaðurinn Lucas Hernandez hefur vakið athygli fyrir óvenjulega skreytingu við heimili sitt, risastóra styttu af górillu sem heldur á HM-bikarnum.
Hinn 30 ára varnarmaður Paris Saint-Germain var hluti af franska liðinu sem varð Heimsmeistari árið 2018 eftir sigur á Króatíu í úrslitaleiknum. Nú, tæpum átta árum síðar, hefur hann ákveðið að minnast þess afreks með sérstökum hætti.
Styttan sýnir górillu í búningi franska landsliðsins, málaða í bláum, rauðum og hvítum litum. Á bakinu má sjá nafn Hernandez og treyjunúmer hans, 21. Höfuð, handleggir og fætur eru rauðlitaðir og í höndum hennar heldur hún á eftirlíkingu af Heimsmeistarabikarnum.
Skúlptúrinn hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum þar sem sumir hrósa hugmyndinni á meðan aðrir telja hana furðulega. Ljóst er þó að Hernandez er stoltur af Heimsmeistaratitlinum og hefur fundið einstaka leið til að heiðra hann.
😅🇫🇷 Lucas Hernández has bought himself a FOUR-METRE GORILLA holding the 2018 World Cup trophy, to decorate HIS HOUSE. 🦍
He wants EVERYONE to remember that he’s a World Cup winner. 🤣
Opinions on it? ⁉️ pic.twitter.com/6x4Oe5nvUH
— Football Tweet ⚽ (@Footballtweet) February 25, 2026