fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Segir frá skuggahliðum knattspyrnumannsins – „Þetta er eitthvað sem við tölum lítið um“

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 14:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Chelsea-goðsögnin John Obi Mikel hefur opnað sig um skuggahliðar þess sem fylgir því að verða atvinnumaður í fótbolta með mikla fjármuni á milli handanna, sér í lagi ef þú kemur frá Afríku.

Mikel lék í ellefu ár með Chelsea og vann meðal annars ensku úrvalsdeildina tvisvar og Meistaradeildina einu sinni. Hann var sagður hafa verið á 70-75 þúsund pundum á viku undir lok ferils síns á Stamford Bridge. Þrátt fyrir það segist hann ekki hafa fengið að sjá allan þann pening sjálfur.

„Þegar þú kemur frá Afríku, og þetta er eitthvað sem við tölum lítið um, þá er peningurinn ekki þinn peningur,“ segir Mikel.

„Allir hringja, ekki til að spyrja hvernig þér líður heldur að því hvað þú ætlir að gefa þeim. Þinn peningur er ekki þinn peningur.“

Mikel sagði að hann hefði fyrir um fimm árum ákveðið að hætta reglulegum greiðslum þrátt fyrir hótanir. „Stundum þarftu að segja: Nóg er nóg. Þú verður vondi kallinn, en þú verður að vera nógu sterkur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“
433Sport
Í gær

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Í gær

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn