fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Ræða Eiðs Smára vekur athygli – „Fáum allt upp í hendurnar… svo tekur venjulegt líf við“

433
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 11:30

Skjáskot: Dr. Football

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það kom upp skemmtileg umræða í þætti Dr. Football á dögunum, hvar Eiður Smári Guðjohnsen var gestur.

Þáttastjórnandinn Hjörvar Hafliðason spurði Eið í gamansömum tón hvers vegna fótboltamenn eru svo gjarnir á að tuða yfir hinu og þessu. Það stóð ekki á svörum hjá fyrrum leikmanni Barcelona og Chelsea.

„Oft á tíðum erum við bara ofdekraðir. Við fáum allt upp í hendurnar snemma, kannski oft á tíðum á aldri sem við ráðum ekki við það. Við þurfum bara að mæta á réttum tíma og þá er morgunmatur klár fyrir þig, það er tekið til eftir þig, svo ferðu bara í gymmið og á fótboltaæfingu. Svo er maturinn tilbúinn uppi á æfingasvæði eftir æfingu,“ útskýrði Eiður og hélt áfram.

„Sem atvinnumaður í fótbolta í dag þarftu að hugsa um sjálfan þig og búa til kvöldmat, ef við segjum að þú sért einhleypur. Nú eru félögin líka með kvöldmat uppi á æfingasvæði, fyrir þá sem vilja. Þá þarftu eiginlega bara að hvíla þig og sofa.

Svo bara tekur venjulegt líf við. Þá hættum við að tuða og erum bara þakklátir fyrir allt sem við fáum,“ sagði Eiður enn fremur og hló, en það má einnig horfa og hlusta á umræðuna í spilaranum hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug