fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Segir upp skömmu eftir magnað afrek – Dóttir hans alvarlega veik

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 09:30

Advocaat Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dick Advocaat hefur sagt af sér sem landsliðsþjálfari Curaçao aðeins þremur mánuðum eftir að hafa skrifað sig í sögubækurnar með liðinu. Undir hans stjórn varð Curaçao minnsta þjóð sögunnar til að tryggja sér sæti á Heimsmeistaramóti.

Hinn 78 ára gamli Hollendingur tók ákvörðunina af persónulegum ástæðum, en dóttir hans glímir við alvarleg heilsufarsvandamál. Í yfirlýsingu útskýrði Advocaat að fjölskyldan kæmi alltaf í fyrsta sæti.

„Ég hef alltaf sagt að fjölskyldan sé mikilvægari en fótboltinn og því er þetta eðlileg ákvörðun,“ sagði Advocaat.

„Ég mun sakna Curaçao, fólksins og samstarfsfólks míns. Að koma þessu liði á Heimsmeistaramót er eitt af stærstu afrekum ferils míns.“

Curaçao, sem hefur rúmlega 150 þúsund íbúa, sló þar með met sem Ísland átti áður eftir HM 2018. Árangurinn hefur vakið mikla athygli í knattspyrnuheiminum.

Advocaat, sem hefur stýrt fjölda stórliða og landsliða á ferlinum, þar á meðal Hollandi, Rangers og Sunderland, náði ótrúlegum árangri með þetta smáa knattspyrnuland.

Fred Rutten mun taka við starfinu með tafarlausum hætti. Brottför Advocaat er mikið áfall fyrir Curaçao, en skilningur ríkir fyrir ákvörðun hans miðað við aðstæður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“
433Sport
Í gær

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Í gær

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn