

Cristiano Ronaldo hefur loksins tjáð sig um umdeilda ákvörðun sína að fara í verkfall hjá Al-Nassr í Sádi-Arabíu.
Portúgalski framherjinn, sem er orðinn 41 árs, sneri aftur á völlinn í síðustu viku og skoraði tvö mörk í öruggum 4-0 sigri á Al-Hazem. Þar með virtist hann svara gagnrýninni sem fylgdi því að hann neitaði að spila í þremur leikjum fyrr í mánuðinum.
Ronaldo hafði verið ósáttur við stuðning félagsins á leikmannamarkaðnum og taldi að Al-Nassr nyti ekki sömu fjárhagslegu aðstoðar frá fjárfestingarsjóðnum PIF og helstu keppinautar þeirra. Óánægjan jókst enn frekar þegar Karim Benzema fékk að ganga til liðs við Al-Hilal.
Framtíð Ronaldo hjá félaginu var í kjölfarið dregin í efa, en sjálfur virðist hann nú slá á allar efasemdir. „Ég er mjög ánægður. Eins og ég hef sagt oft áður þá tilheyri ég Sádi-Arabíu,“ sagði Ronaldo eftir leikinn.
„Þetta er land sem hefur tekið vel á móti mér, fjölskyldu minni og vinum. Ég er hamingjusamur hér og vil halda áfram hér.“
Hann bætti við. „Það mikilvægasta er að við höldum áfram. Við erum í toppbaráttunni og ætlum að halda pressu. Við erum á réttri leið.“
Ronaldo segir liðið vera í góðu formi og horfir bjartsýnn fram á tímabilið.