fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Myndband: Ógeðslegt atvik vekur reiði – Fékk rafhlaupahjól í hausinn fyrir ákvörðun sína

433
Mánudaginn 23. febrúar 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alvarlegt atvik átti sér stað í utandeildarleik í Tyrklandi á dögunum þegar áhorfandi kastaði rafhlaupahjóli úr stúkunni sem hæfði aðstoðardómarann Hakan Baskurt í höfuðið. Leikurinn var í kjölfarið stöðvaður.

Atvikið átti sér stað í leik Darendespor og Hekimhan Belediyesi Girmana Spor. Staðan var 1-1 þegar heimamenn töldu sig hafa skorað sigurmark á 87. mínútu. Baskurt lyfti hins vegar flagginu og dæmdi rangstöðu. Ákvörðunin vakti mikla reiði meðal hluta stuðningsmanna Darendespor.

Í kjölfarið kastaði áhorfandinn, sem hefur verið nafngreindur sem Nurettin Ö., rafhlaupahjóli inn á völlinn. Það lenti á höfði aðstoðardómarans með þeim afleiðingum að hann hlaut djúpan skurð fyrir ofan vinstri augabrún og missti meðvitund um stundarsakir.

Sjúkraþjálfarar og heilbrigðisstarfsfólk á staðnum veittu strax fyrstu hjálp áður en Baskurt var fluttur á Darende Hulusi Efendi ríkissjúkrahúsið. Þar fékk hann sauma í sárið og var síðar útskrifaður. Ekki var talið að meiðslin væru lífshættuleg.

Lögregla handtók manninn á staðnum, en hann var síðar látinn laus meðan rannsókn stendur yfir. Leiknum var vitaskuld hætt.

Atvikið má sjá hér ofar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“