fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Fyrrum leikmaður United og Liverpool ákærður fyrir tilraun til manndráps

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 21. febrúar 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum leikmaður unglingaliða Manchester United og Liverpool, Patrick Lacey, hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps ásamt þremur öðrum.

Lacey, sem er 32 ára, lék lengst af í neðri deildum ensks fótbolta. Ákæran tengist skotárás sem átti sér stað 28. nóvember, þar sem karlmaður á þrítugsaldri var skotinn í fótinn fyrir utan heimili í Huyton. Fórnarlambið var flutt á sjúkrahús með alvarlega áverka.

Lögreglan í Merseyside framkvæmdi umfangsmiklar húsleitir á svæðinu og handtók fjóra menn, þar á meðal Lacey. Hann er einnig ákærður fyrir samsæri til manndráps, vörslu skotvopna með hættulegum ásetningi og alvarlega líkamsárás.

Hinir þrír sem eru ákærðir heita John Aaron Jones, John George Patrick Hughes og Bernard Flynn.

Allir fjórir munu mæta fyrir dómstól í Liverpool. Lacey hefur ekki leikið knattspyrnu síðan 2023 en hefur einnig keppt í hnefaleikum með góðum árangri. Bróðir hans er Shea Lacey leikmaður United í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Í gær

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Í gær

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna