fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Bróðir leikmanns United ákærður – Lék einnig fyrir félagið

Helgi Fannar Sigurðsson
Sunnudaginn 22. febrúar 2026 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Paddy Lacey, eldri bróðir ungs leikmanns Manchester United, Shea Lacey, hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps ásamt þremur öðrum í tengslum við skotárás í Huyton í nóvember.

Þann 28. nóvember 2025 var maður á tvítugsaldri fluttur á sjúkrahús eftir að hafa verið skotinn tvisvar í fótinn um klukkan 22:20 í Huyton-hverfi í Liverpool. Samkvæmt lögreglu voru tveir menn á Sur-Ron-hjóli sagðir hafa framið árásina.

Lögreglan í Merseyside staðfesti að framkvæmdar hefðu verið samræmdar húsleitir í Knowsley, Sefton og Liverpool sem leiddu til fjögurra handtaka. Lacey, 32 ára, ásamt John Aaron Jones (35), John George Patrick Hughes (31) og Bernard Flynn (61), hefur verið ákærður fyrir, tilraun til manndráps, samsæri um manndráp, vörslu haglabyssu og skotfæra með ásetning um að stofna lífi í hættu, alvarlega líkamsárás, samsæri um að valda alvarlegum líkamsmeiðslum.

Allir fjórir eiga að mæta fyrir dóm í Liverpool, Knowsley, Sefton og St Helens Adult Remand Court.

Rannsóknarlögreglumaðurinn Chris Clark sagði rannsóknina áfram í fullum gangi og hvatti vitni til að stíga fram, þar á meðal þá sem kunna að hafa upptökur úr öryggismyndavélum, bílmyndavélum eða dyrabjöllumyndavélum.

Paddy Lacey lék líkt og bróðir hans fyrir unglingalið Manchester United áður en hann færði sig yfir til Liverpool og Sheffield Wednesday. Hann átti síðar feril hjá neðrideildarfélögum á borð við Southport, Chester og Altrincham, auk þess sem hann lék með Accrington Stanley á árunum 2016 og 2017.

Hann hefur einnig keppt sem atvinnumaður í millivigt í hnefaleikum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug