fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Hagnaður á rekstri KSÍ á síðasta ári: Launakostnaður hækkar lítilega á milli ára

433
Föstudaginn 20. febrúar 2026 12:57

Albert Guðmundsson fagnar marki. Mynd DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rekstrarniðurstaða Knattspyrnusambands Íslands á árinu 2025 eftir greiðslur til aðildarfélaga er hagnaður sem nemur kr. 32.629.666

Rekstrartekjur KSÍ árið 2025 námu rúmlega 2,3 milljörðum króna, 13% umfram áætlun, þar sem styrkir frá UEFA og FIFA vógu þyngst. Rekstrargjöld voru 2,24 milljarðar króna, eða 14% yfir áætlun, þar sem kostnaður við lokamót EM kvenna er helsti áhrifaþátturinn.

Skrifstofu- og rekstrarkostnaður KSÍ hækkar um 14 milljónir á milli ára og var 462 milljónir króna á síðasta ári. Kostnaður við landslið voru rúmur 1,1 milljarður en var 933 milljónir árið á undan.

Laun og launatengd gjöld skrifstofu voru 347 milljónir og hækka um 14 milljónir á milli ára.

Rekstur Laugardalsvallar skilaði áfram tapi og hækkaði m.a. vegna aukins kostnaðar við endurnýjun leikflatar Laugardalsvallar með nýju hybrid grasi. KSÍ vinnur nú að nýjum rekstrar- og þjónustusamningi við Reykjavíkurborg á vettvangi Þjóðarleikvangs ehf og bindur KSÍ vonir við nýjan og endurbættan samning sem tekur mið af breyttum rekstrarforsendum Laugardalsvallar með tilkomu nýs hybrid gras með undirhita, sem og aukins rekstrarkostnaðar á framkvæmdatíma.

Þá var úthlutað til aðildarfélaga um 107 m.kr., auk framlags frá UEFA fyrir Club Youth Development.

Lögð er fram rekstraráætlun sem gerir ráð fyrir rúmlega 2 m.kr. hagnaði árið 2026.

Þær breytingar sem hafa orðið frá fyrra ári á tekjuhlið sambandsins eru eftirfarandi:

Tekjufærslur ákveðinna verkefna á vegum UEFA eru ekki lengur heimilar, þar sem umrædd verkefni verða hér eftir eignfærð.
A-landslið karla féll í C-deild Þjóðadeildar sem þýðir mun lægri tekjur til sambandsins.
Tekjur frá PUMA styrktaraðila sambandsins lækka vegna breytinga á nýjum samningi þar sem fastar greiðslur lækka, en árangurstengdar greiðslur hækka á móti.

Handbært fé KSÍ 31.desember 2025 stóð í 492 m.kr. UEFA mælir með að knattspyrnusambönd séu með 20-40% af veltu sambandanna í lausafé, sem gerir 400 – 800 m.kr.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Í gær

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Í gær

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna