fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Furðuleg staða komin upp – Vilja selja lykilmann sinn sem neitar að fara

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 20. febrúar 2026 17:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karl Etta Eyong hefur neitað tilboði frá CSKA Moscow, þrátt fyrir að félagið hafi boðið yfir 30 milljónir evra fyrir sóknarmanninn.

Samkvæmt fréttum er félag hans, Levante, óánægt með ákvörðun þessa 22 ára gamla landsliðsmanns Kamerún.

Forráðamenn félagsins telja tilboðið afar hagstætt og var brugðist við með því að bekkja sóknarmanninn gegn Villarreal í fyrrakvöld.

Eyong hefur skorað sex mörk og lagt upp þrjú í deildinni á tímabilinu og vakið athygli stærri félaga. Meðal þeirra sem eru sögð fylgjast með stöðunni eru Barcelona, Real Madrid, Manchester United, Arsenal, Fulham og Everton.

Leikmaðurinn er spenntari fyrir þessum kostum heldur en að halda til Rússlands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“
433Sport
Í gær

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Í gær

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn