fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Vita ekki hversu mörg börn voru send í Bakkakot

Jakob Snævar Ólafsson
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 17:00

Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar getur á þessari stundu ekki lagt fram upplýsingar um heildarfjölda þeirra barna sem send voru á vegum borgarinnar til dvalar á bænum Bakkakoti í Rangárþingi. Eins og kunnugt er hefur á þriðja tug karlmanna greint frá því að þeir hafi orðið yfir margs konar ofbeldi ýmist líkamlegu, andlegu og kynferðislegu þegar þeir dvöldu í Bakkakoti á barnsaldri. Fara þarf í töluverða vinnu og skoða fjölda skjala til að ná utan um allan hópinn sem fór á bæinn á vegum borgarinnar en barnaverndaryfirvöld í fleiri sveitarfélögum sendu börn þangað.

Fram hefur komið að börn hafi verið send í fóstur eða tímabundna dvöl í Bakkakoti á árunum 1975-2005.

Á fundi velferðarráðs Reykjavíkur í gær var, í ljósi umfjöllunar Kveiks um Bakkakot, töluvert rætt um málefni fósturbarna og eftirlit barnaverndaryfirvalda með fósturheimilum. Var samþykkt á fundi ráðsins að ráðast í úttekt á hvernig þessum málum sé háttað hjá Barnavernd Reykjavíkur.

Með fundargerð fundarins er birt svar við fyrirspurn Þorvaldar Daníelssonar fulltrúar Framsóknarflokksins í velferðarráði en hann óskaði eftir upplýsingum frá velferðarsviði um hvort að börn hafi verið vistuð á vegum Barnaverndar Reykjavíkurborgar í Bakkakoti. Hafi það verið gert óskaði Þorvaldur eftir upplýsingum um hvernig eftirliti með vistun barnanna í Bakkakoti var háttað.

Fjöldinn

Svarið sendi Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs. Í svarinu kemur fram að samkvæmt upplýsingum úr málaskrá félagsmálayfirvalda í Reykjavík hafi 30 börn verið vistuð í Bakkakoti á vegum Reykjavíkurborgar á tímabilinu 1999–2005. Aldur þessara barna hafi verið frá 7 til 17 ára en viðkomandi einstaklingar séu fæddir á árabilinu 1982–1996. Langflest börnin hafi verið í sumardvöl en ekki liggi fyrir hversu lengi hvert barn dvaldist á bænum eða hversu oft. Unnið sé að því að afla þeirra upplýsinga.

Segir enn fremur að núverandi málaskrá Barnaverndar Reykjavíkur nái aftur til ársins 2002, en hafi í einhverjum tilvikum að geyma gögn og upplýsingar sem séu eldri en það. Eldri stafræn málaskrá félagsmálayfirvalda í Reykjavík sem enn sé aðgengileg nái til ársins 1995, en skili ekki eldri upplýsingum en frá árinu 1999 við leit. Verið sé að leita skýringa á því.

Velferðarsvið borgarinnar segir að til að finna gögn sem séu eldri en frá 1999 þurfi að ráðast í umfangsmikla leit í skjalageymslum og vinna úr gögnum um vistanir og handtelja. Ekki sé ljóst hversu skýrt það sé í þeim gögnum hvar börn voru vistuð, þó gögnin beri það með sér að um vistun eða beitingu vistunarúrræða hafi verið um að ræða. Hafin sé leit að skjölum í samvinnu við Borgarskjalasafn og Þjónustu- og nýsköpunarsvið borgarinnar í þeirri viðleitni að ná saman yfirliti. Einnig hafi verið rætt við starfsmenn barnaverndar og félagsþjónustu sem hafi verið starfandi á þessum tíma og séu starfandi enn í dag. Þeirri vinnu sé ekki lokið.

Segir að lokum í svari velferðarsviðs við fyrirspurn Þorvaldar að hafin sé skoðun á því hvernig eftirliti var háttað á þessum tíma, þ.e. hvernig lagaumhverfið var hvað það varðaði. Hafi lögfræðingum Barnaverndar Reykjavíkur verið falið að útbúa álitsgerð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“