fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Allt brjálað eftir gærkvöldið: Ungur krakki með kynþáttaníð – „Eiginkona hans hefur haldið framhjá með stórum blökkumanni“

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 10:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Benfica hefur vísað á bug ásökunum um kynþáttaníð í garð eins leikmanna sinna eftir að hafa birt nýtt myndband af atviki sem skyggði á Meistaradeildarleik liðsins gegn Real Madrid á þriðjudagskvöld.

Um fátt annað er rætt í heimi fótbotlans en atvikið í gær.

Búist er við að UEFA hefji rannsókn á málinu, en leikurinn í Lissabon var stöðvaður í um tíu mínútur vegna atviksins. Vinicius Júnior heldur því fram að argentínski miðjumaður Benfica, Gianluca Prestianni, hafi beitt sig kynþáttaníði skömmu eftir að Brasilíumaðurinn skoraði sigurmark fyrri leikjarins á 50. mínútu.

Athygli vekur krakki í Argentínu sem styður við Prestianni en hann kallar apa í garðinum heima hjá sér nafni Vinicius.

Vinicius segist hafa verið kallaður „api“, og liðsfélagi hans Kylian Mbappé sagður staðfesta þá frásögn. Prestianni, sem er tvítugur, neitar þessu og segir Vinicius hafa „misskilið það sem hann hélt að hann heyrði“.

Felipe Melo frá Brasilíu blandar sér í málið en fyrrum miðjumaðurinn hraunar yfir Prestianni.

Þá sagði Aurélien Tchouaméni við fjölmiðla að Prestianni hafi haldið því fram að hann hefði notað móðgandi skammaryrði um samkynhneigða á spænsku, ekki kynþáttaníð.

Benfica birti í kjölfarið myndband af samskiptunum á samfélagsmiðlum um miðja nótt og setur spurningarmerki við hvort Vinicius og Mbappé hafi í raun heyrt það sem þeir telja.

José Mourinho blandaði sér einnig í umræðuna eftir leik og var gagnrýndur fyrir ummæli sín. Hann gaf í skyn að fagnaðarlæti Vinicius eftir markið hefðu kveikt deiluna. „Vinicius ætti ekki að vera að ögra heilum leikvangi,“ sagði Mourinho og bætti við að slík atvik hefðu gerst oftar í hans tilfelli.

Málið er nú í höndum UEFA og gæti rannsókn sambandsins varpað frekara ljósi á hvað raunverulega átti sér stað. Rio Ferdinand birtir myndband af stuðningsmanni Benfica að leika apa í miðjum leik.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Í gær

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Í gær

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna