fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Telur athyglina koma til vegna útlits – „Mörkum þess að vera kynbundið og kynferðislegt“

433
Þriðjudaginn 17. febrúar 2026 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tara Mae Kirk, framherji hjá Peterborough United, hefur opnað sig um mikla og oft óþægilega athygli sem hún fær á samfélagsmiðlum samhliða fótboltaferli sínum.

Kirk, 22 ára, gekk til liðs við félagið frá Leicester City árið 2022 en fór í sviðsljósið tímabili síðar þegar félagið birti tölfræði og myndir eftir að hún skoraði í nokkrum leikjum í röð. Færslurnar fengu milljónir áhorfa og fylltust af skilaboðum, svo mikið að félagið þurfti að eyða hluta þeirra til að vernda leikmennina.

Í viðtali við The Kick Back á talkSPORT sagði hún að athyglin hefði farið yfir mörkin. „Ég ímyndaði mér aldrei viðbrögðin sem ég hef fengið við því að skora mörk. Þetta er mín staða, þetta er það sem ég á að gera,“ sagði Kirk.

Hún lýsti því hvernig færslur tengdar henni fengu gríðarlega dreifingu. „Fyrstu vikuna fékk ég fimm milljónir áhorfa, svo aftur fimm milljónir vikuna eftir. Þetta gerðist í fimm eða sex vikur í röð.“

Kirk sagðist fljótlega hafa áttað sig á eðli athyglinnar. „Ég skildi fljótt að þetta var jákvætt að hluta, en líka að fara yfir línuna – á mörkum þess að vera kynbundið og kynferðislegt.“

Hún viðurkennir að þetta hafi verið lærdómsferli. „Þetta snýst um að vega og meta hið góða og hið slæma. Það er það sem ég hef þurft að læra.“

Kirk er ekki ein um slíka reynslu, en margar knattspyrnukonur hafa bent á að útlit þeirra fái oft meiri umræðu en hæfileikar þeirra inni á vellinum. Þetta hefur kveikt umræðu um umhverfi leikmanna á samfélagsmiðlum og áhrif þess á líðan þeirra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“