
Óvissa ríkir um tvo leikvanga þegar aðeins fjórir mánuðir eru í heimsmeistaramótið í knattspyrnu.
Annars vegar eru vandamál í kringum Gillette Stadium, heimavöll New England Patriots, þar sem England á til að mynda að spila annan leik sinn í riðlakeppninni.
Borgaryfirvöld í Foxborough krefjast um sex milljóna punda greiðslu frá FIFA til að standa straum af öryggis- og skipulagskostnaði og hafa hótað að veita ekki nauðsynlegt rekstrarleyfi nema samkomulag náist.
Hins vegar hafa einnig komið upp tafir á umfangsmiklum endurbótum á hinum sögufræga Estadio Azteca í Mexíkóborg. Völlurinn, sem tekur um 88 þúsund manns og hýsti úrslitaleiki HM 1970 og 1986, á að hýsa opnunarleik mótsins. Eigandi vallarins hefur viðurkennt að ólíklegt sé að öllum framkvæmdum ljúki fyrir mótið.
FIFA stendur því frammi fyrir snúinni stöðu er varðar tvo leikvanga fyrir mótið. Það er þó enn vonast til að allt verði klárt þegar að því kemur.