fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Einn mikilvægasti leikmaður Liverpool á sér draum – Að spila fyrir Real Madrid

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 15. febrúar 2026 08:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dominik Szoboszlai á sér einn draum um að spila fyrir Real Madrid, að sögn landsliðsþjálfara Ungverjalands, Marco Rossi.

Ummælin hafa vakið athygli meðal stuðningsmanna Liverpool, enda hefur Szoboszlai verið einn besti leikmaður liðsins á tímabilinu undir stjórn Arne Slot. Miðjumaðurinn er samningsbundinn Liverpool til ársins 2028.

Rossi sagði við spænska miðilinn Marca. „Szoboszlai hefur alltaf átt sér einn draum: að spila fyrir Real Madrid. Ég veit ekki hvort hann getur tekið það skref, því ákvörðunin veltur á honum og félaginu hans.“

Hann útilokaði þó ekki að Szoboszlai yrði áfram á Anfield. „Ég útiloka alls ekki að hann verði áfram hjá Liverpool og framlengi samning sinn, sérstaklega þar sem hann er mikils metinn hjá félaginu. Hann er mjög mikilvægur leikmaður og Liverpool er eitt stærsta félag í heimi.“

Liverpool keypti Szoboszlai frá RB Leipzig fyrir um 60 milljónir punda og hann átti stóran þátt í árangri liðsins. Ummælin gætu þó ýtt undir vangaveltur um framtíð hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“