fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Áfall fyrir City – Rodri líklega á leið í bann fyrir þessi ummæli

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 14. febrúar 2026 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rodri, miðjumaður Manchester City, gæti átt yfir höfði sér bann eftir að enska knattspyrnusambandið (FA) ákærði hann fyrir óviðeigandi ummæli um dómara.

Spænski landsliðsmaðurinn gagnrýndi dómgæslu harðlega eftir 2-2 jafntefli City gegn Tottenham fyrr í mánuðinum. Hann hélt því fram að dómarar hefðu gert mistök þegar fyrsta mark Tottenham var dæmt gilt, þar sem Dominic Solanke hefði brotið á Marc Guéhi áður en boltinn fór í netið.

„Hann sparkar í fótinn á honum, þetta er augljóst,“ sagði Rodri eftir leik.

„Þetta er klár aukaspyrna. Þetta er ekki bara í dag, heldur tvo eða þrjá leiki í röð.“

Hann bætti einnig við. „Ég veit að við höfum unnið mikið og fólk vill ekki að við vinnum, en dómarinn verður að vera hlutlaus. Fyrir mér er þetta ekki sanngjarnt.“

FA telur að ummælin gefi í skyn hlutdrægni og dragi heiðarleika dómara í efa. Rodri hefur frest til 18. febrúar til að svara ákærunni.

Ef hann verður fundinn sekur gæti hann fengið leikbann eða sekt. Málið hefur vakið mikla umræðu um ummæli leikmanna um dómgæslu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“