fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Ungur maður lést vegna veiru sem er stórhættuleg – Berst með nagdýrum og smitast með þessum hætti

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

22 ára knattspyrnumaður frá Chile er látinn eftir að hafa smitast af sjaldgæfri veiru sem berst með nagdýrum. Um er að ræða sömu tegund veiru og varð eiginkonu Hollywood-leikarans Gene Hackman að bana á síðasta ári.

Leikmaðurinn hét Matías Uribe Nova og lék með Club Deportivo Juventud Iberia. Hann var lagður inn á bráðamóttöku eftir að hafa fundið fyrir skertu meðvitundarástandi og lágum blóðþrýstingi. Áður hafði hann leitað á heilsugæslu vegna einkenna á borð við meltingartruflanir, hita og höfuðverk.

Við seinni komu hans á sjúkrahús voru gerðar blóðrannsóknir og röntgenmynd af lungum. Læknar grunaði að um hantaveiru-lungnaheilkenni væri að ræða og óskuðu eftir að hann yrði fluttur frá sjúkrahúsi í Lirquén á stærra sjúkrahús í Talcahuano.

Á meðan beðið var eftir flutningi fékk Nova hjartastopp. Þrátt fyrir endurlífgunartilraunir lést hann áður en hægt var að veita honum sérhæfða meðferð. Andlátið átti sér stað laugardaginn 7. febrúar.

Heilbrigðisyfirvöld í Biobío-héraði staðfestu síðar að um hantaveirusmit væri að ræða, fyrsta tilfelli ársins á svæðinu. Talið er að Nova hafi smitast þegar hann var í sjálfboðastarfi við að aðstoða fólk sem varð fyrir áhrifum af miklum gróðureldum á svæðinu.

Hantaveirur geta valdið alvarlegum sjúkdómum, þar á meðal lungnaheilkenni og nýrnaveiki með blæðingum. Veirurnar berast helst með nagdýrum og smit geta orðið við snertingu við þvag, saur eða munnvatn þeirra.

Veiran vakti heimsathygli þegar Betsy Arakawa, eiginkona Gene Hackman, lést af hennar völdum í fyrra. Hún fannst látin á heimili þeirra í Santa Fe. Hackman lést síðar af náttúrulegum orsökum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“