fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Þarf að nota hjólastól og leggst reglulega inn á sjúkrahús vegna verkja

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 10. febrúar 2026 11:30

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rio Ferdinand segir að bakmeiðsli frá knattspyrnuferlinum hafi haft veruleg áhrif á sig eftir að hann lagði skóna á hilluna og að hann þurfi stundum að nota hjólastól og leita á sjúkrahús.

Ferdinand, 47 ára, átti glæsilegan feril með Manchester United og enska landsliðinu og lék nærri 600 leiki áður en hann hætti árið 2015. Á ferlinum glímdi hann við ýmis meiðsli og segist hafa notað verkjatöflur og sprautur í mörg ár til að geta spilað.

Í viðtali sagði hann að afleiðingarnar væru nú að koma fram. „Ég hef verið með slæmt bak í langan tíma. Ég var á töflum og sprautum í sex ár til að spila leiki. Það hefur haft áhrif á mig,“ sagði Ferdinand.

Hann lýsti því að stundum kæmu slæmir verkjakaflar skyndilega. „Stundum þarf ég að vera á sjúkrahúsi í nokkra daga eða í hjólastól í nokkra daga. Þetta kemur bara upp úr engu,“ sagði hann.

Ferdinand og eiginkona hans Kate fluttu til Dubai á síðasta ári. Þrátt fyrir að líta vel út líkamlega í nýlegri myndatöku fyrir tímarit segir hann heilsuna krefjast mikillar vinnu. Hann hefur nú hafið reglulegt samstarf við sjúkraþjálfara og leggur áherslu á heildræna nálgun í endurhæfingu til að bæta líðan sína til framtíðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“