fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Uppeldisfélagið vill ekki fá hann – Bauð Marseille að fá sig

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 8. febrúar 2026 18:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sergio Ramos, fyrrverandi fyrirliði spænska landsliðsins, er á höttunum eftir nýju félagi og hefur boðið Marseille starfskrafta sína eftir að Sevilla hafnaði því að fá hann aftur til félagsins.

Hann lék síðast í Mexíkó

Ramos, sem er 39 ára og án félags um þessar mundir, er uppalinn hjá Sevilla og hóf þar feril sinn áður en hann fór til Real Madrid og síðar Paris Saint-Germain. Margir höfðu talið líklegt að hann myndi enda ferilinn hjá æskufélaginu, en samkvæmt spænskum miðlum hafði Sevilla ekki áhuga á að semja við varnarmanninn að þessu sinni.

Í kjölfarið hefur Ramos leitað annarra leiða og á að hafa boðið Marseille í Frakklandi krafta sína. Franska félagið er sagt skoða markaðinn fyrir reynda leikmenn og gæti reynsla Ramos reynst dýrmæt.

Ramos hefur átt glæsilegan feril, unnið fjölda titla og verið lykilmaður í einu sigursælasta liði Spánar og Real Madrid. Nú er spurning hvar hann spilar næst og hvort hann bæti enn einum kafla við langan og farsælan feril.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Í gær

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Í gær

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna