fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Guardiola segist ekki ætla að þegja þrátt fyrir gagnrýni

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 6. febrúar 2026 21:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, hefur varið ákvörðun sína um að tjá sig opinberlega um átök og mannúðarmál, þrátt fyrir gagnrýni sem hann hefur fengið. Spánverjinn segir enga ástæðu til að þegja bara vegna þess að hann sé knattspyrnustjóri.

Guardiola ræddi um þjáningar óbreyttra borgara á átakasvæðum í síðustu viku og sagðist finna til þegar hann sæi fréttir af börnum sem særast eða látast. Hann nefndi meðal annars átök í Palestínu, Úkraínu og Súdan.

Ummælin vöktu bæði lof og gagnrýni, en fulltrúar gyðingasamfélagsins í Manchester hvöttu hann til að einbeita sér að fótboltanum. Guardiola sagðist þó standa við orð sín og lagði áherslu á að hann fordæmdi allt ofbeldi gegn saklausu fólki, óháð landi eða átökum.

„Af hverju ætti ég ekki að segja það sem mér finnst? Ef saklaust fólk er drepið, þá fordæmi ég það,“ sagði Guardiola.

Hann bætti við að þögn væri ekki lausnin og að fólk í öllum stöðum samfélagsins ætti að hafa rétt til að láta í sér heyra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“