fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Dagsetningin á endurkomu Böðvars í Kaplakrika – „Á einu máli um að ég myndi fá rautt“

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 5. febrúar 2026 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Böðvar Böðvarsson var í gær kynntur til leiks sem nýr leikmaður ÍA, en hann kemur frá FH.

Böðvar var einn reynslumesti leikmaður FH, hafði verið varafyrirliði og algjör lykilmaður. Það kom því mörgum í opna skjöldu þegar fregnir bárust af því að félagið vildi losa sig við hann.

Kappinn fór því í það að finna sér nýtt félag og var Skaginn lendingin, en þar eru menn stórhuga fyrir næsta sumar.

Böðvar var í ítarlegu viðtali við 433.is í gær og var hann þar spurður að því hvernig hann héldi að það yrði að mæta á Kaplakrikavöll sem andstæðingur.

„Það þarf eiginlega að koma í ljós. Ég fór upp í Krika áðan að kveðja Davíð og Viðar Halldórs. Ég á eftir að kveðja leikmenn en þar voru menn á einu máli um að ég myndi fá rautt í sumar. Það er trúin sem þeir hafa á andlega þætti mínum. Ég er bara spenntur að fá þá í heimsókn upp á Skaga og hrifsa af þeim þrjú stig í Krikanum,“ sagði Böðvar léttur.

Dagskráin fyrir Bestu deildina er komin út og Böðvar og Skagamenn munu mæta í Kaplakrika þann 29. maí, í níundu umferð deildarinnar.

Meira
Böðvar opnar sig um skiptin og síðustu daga – „Brottförin er á engan hátt á mínum forsendum“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug