fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Óttast það að fólk haldi að hann sé hommi eftir auglýsingar tvö ár í röð

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 5. febrúar 2026 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ensk úrvalsdeildin hyggst setja af stað nýja herferð tengda hinsegin-málefnum undir heitinu With Pride dagana 6.–13. febrúar. Markmiðið er að sýna stuðning við LGBTQ+ samfélagið en um leið draga úr þrýstingi á einstaka leikmenn.

Samkvæmt frétt The Athletic hefur einn leikmaður í deildinni kvartað við félag sitt eftir að hafa birst tvö ár í röð á forsíðu leikskrár félagsins á meðan Rainbow Laces-herferðin stóð yfir. Talið er að leikmaðurinn hafi óttast að það gæfi ranga mynd af honum, þó ekki sé greint frá nafni hans. Er hann sagður óttast það að fólk telji að hann sé hommi.

Úrvalsdeildin sleit á síðasta ári samstarfi sínu við Stonewall, hinsegin-samtök sem deildin hafði unnið með frá 2014, og þar með lauk Rainbow Laces-verkefninu í fyrri mynd.

Nýja herferðin felur í sér að fyrirliðar verða ekki beðnir um að bera regnbogalitaða fyrirliðabönd og leikmenn þurfa hvorki að klæðast sérstökum upphitunartreyjum né reima regnbogalitaða skóreima. Slík atriði höfðu skapað ágreining á síðustu leiktíð.

Til dæmis neitaði Sam Morsy, fyrirliði Ipswich, að bera regnbogaband. Þá skrifaði Marc Guehi trúarleg skilaboð á sitt band og var áminntur af enska knattspyrnusambandinu, sem minnti á reglur um bann við persónulegum eða trúarlegum skilaboðum á búnaði.

Í staðinn mun nýja herferðin sjást í auglýsingaskiltum, á skjám leikvanga og á leikbúnaði. Vonast er til að sú nálgun minnki togstreitu og leyfi félögum og leikmönnum að sýna stuðning með sveigjanlegri hætti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“
433Sport
Í gær

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Í gær

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn