fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Eivydas, Kamile og Egidijus fengu öll þunga dóma – Frömdu alvarlegt brot í sameiningu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 4. febrúar 2026 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður um þrítugt, Eivydas Laskauskas, 25 ára kona, Kamile Radzeviciute, og karlmaður á sextugsaldri, Egidijus Dambraukskas voru ákærð fyrir stórfellt fíkniefnabrot, fyrir að hafa staðið saman að innflutningi á rúmlega 5,6 kg af kókaíni.

Efnin voru falin í bíl af gerðinni BMW, sem var fluttur hingað til lands. Þau Kamile og Egidijus keyptu bílinn í gegnum fyrirtæki Kamile, Heklarar ehf, fluttu hann út til Litháens, þaðan sem þetta fólk virðist vera, og fluttu hann síðan aftur til landsins.

Í ákæru var greint frá því að bíllinn hafi komið til Þorlákshafnar 16. júní síðasta sumar með flutningaskipi frá Danmörku. 3. júli sótti Egidijus bílinn til Tollstjóra í Kópavogi og ók honum að bílastæði við Nettó í Breiðholti. Þar stóð bíllinn í tvo daga en hann færði hann síðan yfir á bílastæði við Mini Market við Drafnarfell í Breiðholti. Þann 7. júlí keyrði Egidijus bílinn að bílaverkstæði við Gljáhellu í Hafnarfirði og þar hitti hann, síðar þennan dag, Eivydas og Kamile við bílinn. Daginn eftir voru þau öll saman komin við bílaverkstæðið þegar bílnum var ekið inn og upp á bílalyftu. Þar voru þau þrjú handtekin en lögreglan fann fíkniefnin í drifskafti og grindarbitum bílsins.

Neituðu öll sök

Dómur var kveðinn upp í málinu við Héraðsdóm Reykjaness þann 26. janúar síðastliðinn og hefur dómurinn nú verið birtur á vefsíðu dómstólanna.

Fyrir dómi neituðu öll þrjú sök og þóttust ekki hafa vitað af fíkniefnunum. Sönnunargögn um sekt þeirra allra þóttu hins vegar vera óvefengjanleg. Var þeim virt til refsiþyngingar að þau höfðu sameinast við skipulagningu og framningu á brotinu.

Fengu þau öll, hvert um sig, þriggja og hálfs árs fangelsi.

Dóminn má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”