fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Leggja fram þessar breytingar til að taka á leiktöfum í leiknum fagra

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 4. febrúar 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

International Football Association Board (IFAB), sem sér um knattspyrnulögin, mun síðar í mánuðinum greiða atkvæði um nýjar reglur sem eiga að draga úr tímaeyðslu í leikjum. Á ársfundi í Wales verður meðal annars rætt um að taka upp niðurtalningu hjá dómurum við innköst og markspyrnur.

Markmiðið er að minnka vísvitandi tafir leikmanna og þjálfara og auka þann tíma sem boltinn er í leik. Telji dómari að verið sé að tefja leik gæti hann sýnt fimm sekúndna niðurtalningu með fingrunum. Ef lið fylgir ekki fyrirmælum gæti markspyrna breyst í hornspyrnu fyrir andstæðinga og innkast færst yfir til hins liðsins.

Einnig er til umræðu 10 sekúndna regla við skiptingar til að koma í veg fyrir að leikmenn gangi hægt af velli. Þá verður litið til aukinna tilfella þar sem markverðir þykjast meiddir til að tefja leik. Tillaga er um að útileikmaður fari tímabundið af velli þegar markvörður fær aðhlynningu.

Fundurinn fer fram í Cardiff 28. febrúar. FIFA og bresku knattspyrnusamböndin eiga atkvæði, og þarf sex af átta til að breytingar nái fram að ganga. Nýjar reglur gætu tekið gildi 1. júlí.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug