

Fjórir hafa verið handteknir í tengslum við ólöglega IPTV starfsemi í Manchester eftir að lögregla lagði hald á tíu netþjóna metna á um 750 þúsund pund.
Sky greindi frá grunsamlegri starfsemi, sem áætlað er að hafi þjónað milljónum notenda í Bretlandi. Einn af þeim grunuðu á að hafa aflað 3 milljóna punda í tekjur af starfseminni.
„Þessi aðgerð sýnir áhrifin sem við getum haft þegar við vinnum náið með samstarfsaðilum eins og Sky til að binda endi á ólögleg streymi,“ segir fulltrúi lögreglu.