fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fréttir

Fimmtán fóru veikir heim eftir að hafa borðað grænmetisbollur

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 12:30

Mynd/Fjarðabyggð

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tólf leikskólanemendur og þrír grunnskólanemendur hið minnsta fóru veikir heim eftir að hafa borðað í mötuneyti Skólamiðstöðvarinnar á Fáskrúðsfirði þann 20. janúar síðastliðinn.

Í kjölfarið kom upp grunur um matarborinn sjúkdóm í mötuneytinu og í samræmi við verklag var haft samband við Heilbrigðiseftirlit Austurlands (HAUST) sem tók út eldhúsið.

Í frétt á vef Fjarðabyggðar kemur fram að niðurstöður sýnatöku hafi varpað grun að grænmetisbollum sem boðið hafði verið upp á. Bollurnar sem um ræðir eru frá Víking sjávarfangi og út frá niðurstöðum sýnatökunnar er dregin sú ályktun að Bacillus cereus toxin (Cereulide toxin) hafi myndast við framleiðslu á vörunni hjá framleiðanda.

Um er að ræða hitaþolið eitur sem þolir hitun upp í 121°C og eyðist það því ekki við hitun upp í 72°C. Uppruni matarsýkingarinnar er því hjá framleiðanda vörunnar en ekki í eldhúsi skólans, að því er segir í fréttinni á vef Fjarðabyggðar.

Varan, indverskar grænmetisbollur og grænmetisbuff, var innkölluð þann 28. janúar síðastliðinn samkvæmt tilkynningu MAST.

Í frétt á vef Fjarðabyggðar kemur fram að í mötuneytinu borði daglega um 140 nemendur og 30 starfsmenn. Ekki liggja fyrir upplýsingar um að börn hafi þurft að leita til HSA vegna veikinda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fundarhöld um helgina
Fréttir
Í gær

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“
Fréttir
Í gær

Danska konan skuldar Gunnari um 11 milljónir – „Ég er alveg brjálaður yfir þessu“

Danska konan skuldar Gunnari um 11 milljónir – „Ég er alveg brjálaður yfir þessu“
Fréttir
Í gær

Ebba segist hafa bent á leiðir til að spara í rekstri LSH – „Kurteislega bent á að það væri líklega bara best að þegja“

Ebba segist hafa bent á leiðir til að spara í rekstri LSH – „Kurteislega bent á að það væri líklega bara best að þegja“
Fréttir
Í gær

Furðar sig á viðbrögðum frambjóðenda við ábendingu – „Sjálfstæðisflokkurinn eins og hann leggur sig er hlaupinn í felur“

Furðar sig á viðbrögðum frambjóðenda við ábendingu – „Sjálfstæðisflokkurinn eins og hann leggur sig er hlaupinn í felur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fjórir í gæsluvarðhaldi í umfangsmiklu fíkniefnamáli

Fjórir í gæsluvarðhaldi í umfangsmiklu fíkniefnamáli