fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Virðist hafa litlar áhyggjur af Arsenal: ,,Aldrei upplifað það að þeir vinni titilinn“

Victor Pálsson
Föstudaginn 30. janúar 2026 19:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bernardo Silva virðist ekki hafa of miklar áhyggjur af liði Arsenal í dag sem situr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.

Arsenal er með fjögurra stiga forskot á toppi úrvalsdeildarinnar þessa stundina en liðið hefur ekki unnið þann stóra síðan 2004.

Silva og hans menn eru svo sannarlega í baráttunni og er Portúgalinn nokkuð sannfærður um að hans menn geti barist um titilinn alveg þar til að tímabilinu lýkur.

Hann bendir á að Arsenal hafi ekki unnið deildina á hans tíma á Englandi en Liverpool hefur verið helsti keppinautur þeirra bláklæddu.

,,Á mínum ferli hér á Englandi þá hefur Liverpool unnið tvo titla og við höfum unnið sex svo ég hef aldrei upplifað það að Arsenal geti unnið titilinn,“ sagði Silva.

,,Staðan er hins vegar sú að eins og er þá eru þeir í betri stöðu en við og ég sagði nýlega að bæði lið myndu tapa stigum.“

,,Því miður þá byrjum við árið nokkuð illa því við hefðum getað tekið stjórnina en gerðum það ekki.“

,,Það eru ennþá margir leikir eftir og öll tímabil eru mismunandi. Það er engin spurning um það að við eigum enn von og erum ákveðnir í að berjast um titilinn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“