fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Hefur fengið óhugnanlegt símtal í tvígang – ,,Pabbi minn var öskrandi í bakgrunni og grátbað um hjálp“

Victor Pálsson
Föstudaginn 30. janúar 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru fáir ef einhverjir sem hafa lent í því sama og maður að nafni John Obi Mikel sem knattspyrnuaðdáendur ættu að kannast við.

Obi Mikel var flottur miðjumaður á sínum tíma en hann er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Chelsea.

Nígeríumaðurinn hefur lent í því tvisvar á sinni ævi að pabba hans hefur verið rænt en fyrra atvikið átti sér stað er hann var á mála hjá Chelsea.

Obi Mikel borgaði þá upphæð sem ræningjarnir báðu um en lenti svo í öðru slíku atviki nokkrum árum seinna.

,,Ég talaði við ræningjana í gegnum síma og mér leið alveg skelfilega, pabbi minn var öskrandi í bakgrunni og grátbað mig um hjálp,“ sagði Obi Mikel.

Getty Images

,,Ég sendi peningana heim og bróðir minn sá um að taka þá út og vissi hvar hann ætti að skila þeim. Þeir svöruðu og sögðu okkur að koma aftur eftir 30 mínútur.“

Seinna atvikið átti sér stað á HM árið 2018 en Nígería spilaði þá með Íslandi í riðlakeppninni en Obi Mikel fékk símtal fyrir leik gegn Argentínu.

,,Ég í hótelherberginu að undirbúa mig fyrir leikinn en síminn hætti ekki að hringja og að lokum þá svaraði ég.“

,,Bróðir minn sagði: ‘Við ætluðum ekki að segja þér þetta en við verðum að gera það, þetta hefur gerst aftur. Pabba hefur verið rænt.’

,,Ég sat þarna í um 30 mínútur hugsandi hvort ég ætti að tala við þjálfarann eða liðið? Ég ákvað að segja ekki neitt og spilaði leikinn.“

,,Ég var nálægt því að æla á vellinum, ég gat ekki einbeitt mér. Það eina sem ég hugsaði um var hvernig ég gæti komið pabba mínum úr sömu vandræðum í annað sinn.“

,,Það kom tímapunktur í þessum leik þar sem ég var ekki ég, ég hafði ekki hugmynd um hvað væri að gerast í kringum mig á vellinum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“