fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Daður við stórstjörnuna heldur áfram á Instagram – Uppi getgátur um að þau séu par í dag

433
Föstudaginn 30. janúar 2026 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mykhailo Mudryk, kantmaður Chelsea, hefur vakið athygli utan vallar að undanförnu eftir samskipti sín á samfélagsmiðlum við bandarísku sjónvarpsstjörnuna Jordyn Jones.

Mudryk, sem er 25 ára, hefur verið frá keppni í yfir ár eftir að hafa verið ákærður vegna meints jákvæðs lyfjaprófs og bíður enn niðurstöðu í málinu. Á meðan virðist hann þó njóta lífsins utan knattspyrnunnar. Hann skrifaði í athugasemd við myndband af Jones í september. „Guys, should I try?“ og síðar bauð hann henni í ferð til Disneyland í París.

GettyImages

Nokkrum dögum síðar birti Jones myndir frá París, sem kveikti sögusagnir um að þau hefðu hist. Síðustu vikur hafa þau haldið áfram að skiptast á skilaboðum opinberlega. Þegar Jones birti mynd af sér með rósir í Oxfordshire svaraði Mudryk. „Flowers suit you,“ og hún svaraði til baka: „why thank you darling.“


Jones hefur einnig sést með Chelsea-trefil og fylgir Mudryk á Instagram, þar sem hún er með yfir níu milljónir fylgjenda. Hún sló í gegn sem dansari á unglingsárum og hefur síðar unnið við leiklist og fyrirsætustörf.

Mudryk bíður nú úrskurðar í lyfjamálinu og hefur lýst yfir sakleysi sínu. „Þetta kom mér algjörlega á óvart. Ég hef aldrei vísvitandi tekið ólögleg efni og vinn nú með teymi mínu að því að komast að því hvernig þetta gat gerst,“ sagði hann eftir að málið var gert opinbert í júní.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“