fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Margir gapandi hissa á fréttunum af Böðvari – Telur að nýjar upplýsingar muni senn koma fram

433
Laugardaginn 31. janúar 2026 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Jóhann Páll Ástvaldsson voru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni.

Það vakti gríðarlega athygli á dögunum þegar fréttir bárust af því að Böðvar Böðvarsson, lykilmaður FH undanfarin ár og einn reynslumesti leikmaður liðsins, mætti fara. Nýr þjálfari, Jóhannes Karl Guðjónsson, sá ekki not fyrir hann samkvæmt fréttum.

„Það er einhver saga ósögð þarna. Við eigum eftir að sjá heildarmyndina eftir nokkrar vikur,“ sagði Jóhann í þættinum.

video
play-sharp-fill

FH er að fara af stað með nýja stefnu og ætla að byggja á yngri leikmönnum.

„Þeir eru smá eins og ég í Football Manager, ef þú ert farinn að finna lykt af þrítugu er þér fleygt út. Það skrýtna við þetta er að á sama tíma eru ferlar að lengjast. Við viljum yngja en gæjar geta spilað ótrúlega lengi,“ sagði Jóhann, áður en Þorkell tók til máls.

„Stuðningsmenn fýla aldrei þegar þú hendir burt uppöldum leikmanni. En nú ætla ég að taka upp ákvörðun fyrir Jóa Kalla og félaga. Það var tekin ákvörðun um að losa sig við Heimi Guðjónsson og fara í allt aðra átt, einhverja Moneyball-leið. Þá verða þeir bara að standa og falla með því. Þeir ákváðu að fara í Jóa Kalla og þessa hugmyndafræði, þá skiptir engu máli hvort leikmaðurinn er uppalinn eða ekki.“

Þátturinn er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
Hide picture