fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Hallgrímur fékk óvænt tíðindi frá Noregi og hamingjuóskunum rignir yfir hann – „Rosalegt!“

Fókus
Miðvikudaginn 28. janúar 2026 09:37

Hallgrímur Helgason rithöfundur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rithöfundurinn Hallgrímur Helgason hefur fengið gleðitíðindi frá nágrönnum okkar í Noregi, en þar er hann efstur á metsölulista Bokhandlerforeningen, sem eru samtök norskra bóksala.

Þetta er þriðja vika Hallgríms á listanum, en bók hans Sextíu kíló af sólskini var þar fyrst í þriðja sæti, svo öðru og nú í því fyrsta. Í öðru sæti þessa vikuna er glæpasagnadrottningin sænska, Camilla Lackberg, og í því þriðja má finna glæpasagnakónginn danska, Jens Henrik Jensen.

Hallgrímur deilir þessum stórtíðindum á Facebook: „Held þetta sé það óvæntasta á mínum ferli. Númer eitt í Noregi.“

Hann þakkar svo þeim fjölmörgu sem áttu þátt í að gera norsku þýðingu bókarinnar að veruleika svo hún fengi tækifærið til að verma efsta sæti metsölulistans.

Hamingjuóskunum rignir nú yfir Hallgrím frá vinum og kollegum.

Til dæmis skrifar rithöfundurinn Andri Snær Magnason : „Rosalegt!“ og fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason lýsir því að bók Hallgríms hljóti að höfða til Norðmanna, enda hafi sögur af útgerðamönnum og veseni þeirra verið stór bókmenntagrein á árum áður þar í landi.

Bókin Sextíu kíló af sólskini fjallar um umbrotatíma í íslenskri sögu, þegar nútimin sigldi til hafnar á Norðurlandi og Norðmenn námu landið öðru sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína
Fókus
Fyrir 3 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short