fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Unnustan ákærð fyrir að keyra á gangandi einstakling – Gæti fengið fimm ára fangelsi

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 27. janúar 2026 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kærasta enska úrvalsdeildarleikmannsins Aaron Wan-Bissaka stendur frammi fyrir mögulegri fangelsisrefsingu verði hún fundin sek. April Francis, 27 ára, er ákærð fyrir að hafa ekið á gangandi vegfaranda í september síðastliðnum, sem leiddi til alvarlegra og varanlegra meiðsla.

Atvikið átti sér stað í Brentwood í Essex og er talið að Wan-Bissaka, sem leikur með West Ham, hafi ekki verið viðstaddur þegar slysið varð. Francis, sem hefur verið í sambandi við knattspyrnumanninn síðan 2020 og er móðir barns þeirra, hefur verið ákærð fyrir að valda alvarlegum meiðslum með hættulegum akstri.

Um er að ræða eitt alvarlegasta umferðarlagabrot sem hægt er að ákæra fyrir í Bretlandi og getur refsing við sakfellingu orðið allt að fimm ára fangelsi. Francis á að mæta fyrir dóm í Colchester-dómstólnum í Essex þann 17. febrúar.

Wan-Bissaka, lék með West Ham í gær í 3-1 sigri gegn Sunderland. Hann hóf feril sinn hjá Crystal Palace áður en hann lék 130 leiki fyrir Manchester United. Á síðasta ári skipti hann einnig um landslið og leikur nú fyrir Lýðveldið Kongó eftir að hafa áður leikið fyrir yngri landslið Englands.

Talsmaður Essex-lögreglunnar staðfesti að Francis hefði verið ákærð eftir að sönnunargögn málsins hefðu verið yfirfarin af lögreglu og saksóknara.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina