fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Gummi Tóta var búinn að pakka í töskur þegar allt fór í vaskinn – „Að einhverju leyti það klikkaðasta sem ég hef upplifað“

433
Mánudaginn 26. janúar 2026 08:30

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Þórarinsson, atvinnu- og landsliðsmaður til margra ára og nýjasti leikmaður ÍA, var gestur Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni.

Eftir að hafa yfirgefið Norrköping árið 2019 fór Guðmundur til New York City í MLS-deildinni. Hann var þó nálægt því að enda annars staðar.

video
play-sharp-fill

„Ég var búinn að vera umboðsmannalaus í tvö ár og ég hafði þann grun að ég hefði getað farið frá Norrköping aðeins fyrr, en það endar með því að ég spila út samninginn minn og ætla ekki að framlengja. Við tekur að einhverju leyti það klikkaðasta sem ég hef upplifað. Nú er ég að tala um hluti utan vallar. Maður var svolítið saklaus strákur frá Íslandi og kunni ekki alveg leikinn tengt þessu öllu.

Ég var á leið til Tyrklands, búinn að pakka í töskur og bóka flug en svo kemur upp eitthvað umboðsmannadæmi sem ég get ekki alveg útskýrt. Það var einhver annar umboðsmaður sem var búinn að eigna sér að ég kæmi þangað og ætlaði í mál við klúbbinn því þeir vildu að þetta færi í gegnum einhvern annan umboðsmann. Það slaufast allt,“ sagði Guðmundur.

„Ég fékk margar fyrirspurnir um hitt og þetta en er án umboðsmanns, sem var algjörlega galið á þessum tímapunti. Ég kunni náttúrulega ekkert á þetta sjálfur. Ég vissi að New York hafði fylgst með mér lengi, þeir voru með sænskan scout. Ég enda á að fara þangað í gegnum sænskan umboðsmann. Þetta var geðveikur tími að mörgu leyti,“ sagði Guðmundur, sem varð MLS-meistari með New York í lok árs 2021.

Þátturinn er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
Hide picture