fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Opnar sig um stirt samband við Óla Kristjáns – „Við náðum ekki alveg saman“

433
Sunnudaginn 25. janúar 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Þórarinsson, atvinnu- og landsliðsmaður til margra ára og nýjasti leikmaður ÍA, var gestur Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni.

Árið 2014 var Guðmundur fenginn frá Sarpsborg í Noregi til Norsjælland í Danmörku, þar sem Ólafur Kristjánsson var við stjórnvölinn. Samband þeirra var ekki alltaf dans á rósum.

„Það var aðeins erfitt, við náðum ekki alveg saman, eins og gengur og gerist,“ sagði Guðmundur.

video
play-sharp-fill

„Horfandi til baka, án þess að segja allt sem ég hugsa, var þetta örugglega erfitt fyrir Óla. Hann er þarna að fá Íslending og fékk svo nokkra Íslendinga. Ég held það sé erfið nálgun hvernig hann á að tækla það. Þetta er svolítið eins og það kæmi Færeyingur að þjálfa á Íslandi og fengi 2-3 Færeyinga, það væri örugglega erfið staða að vera í.

En ég var ekkert alltaf sáttur við samskiptin og hvernig þeim var háttað, en það er bara eins og það er. Maður þarf líka að horfa í spegil og bera ábyrgð á sjálfum sér. Maður var enn ungur og brothættari en maður er í dag. Það voru margir þættir sem spiluðu inn í að mér leið ekki alveg nógu vel þarna. Svo spilar inn í að það voru fleiri möguleikar í boði svo maður fer að hugsa hvort maður hafi tekið rétta ákvörðun,“ sagði Guðmundur enn fremur, en lið í Hollandi, Tyrklandi og Belgíu höfðu reynt að fá hann einnig.

„Ég var einhvern tímann með smá sleggjur um Óla í einhverju podkasti og sé smá eftir því, en hann átti alveg skilið smá skot,“ sagði Guðmundur að endingu um málið og hló.

Þátturinn er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
Hide picture