fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Þetta er sögð vera upphæðin sem Guðmundur fékk fyrir að velja Akranes um helgina

433
Fimmtudaginn 22. janúar 2026 08:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Þórarinsson gekk í raðir ÍA um helgina en heimkoma hans úr atvinnumennsku hefur vakið mikla athygli. ÍA hafði betur í baráttu við FH og fleiri lið.

Í Þungavigtinni í gær var því haldið fram að Guðmundur hefði fengið virkilega væna summu fyrir það að skrifa undir hjá ÍA.

Kristján Óli Sigurðsson sagði frá því að Guðmundur hefði fengið 7 milljónir króna fyrir að skrifa undir hjá ÍA, hann gerði svo tveggja ára samning og fær vafalítið vel borgað.

Guðmundur kemur til ÍA á frjálsri sölu frá armenska félaginu FC Noah eftir 13 ára feril í atvinnumennsku erlendis. Á atvinnumannaferli sínum hefur Guðmundur leikið í Noregi, Svíþjóð og Danmörku, í MLS-deildinni í Bandaríkjunum og í grísku úrvalsdeildinni.

Á ferlinum hefur Guðmundur meðal annars orðið norskur deildar- og bikarmeistari með Rosenborg, meistari í MLS-deildinni með New York City FC, og deildar- og bikarmeistari með FC Noah. Guðmundur á 15 A-landsleiki að baki fyrir íslenska karla landsliðið en hann verður 34 ára á þessu ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“